Diskótekið

Diskótekið Dúndur var stofnað 1991 og hefur starfað óslitið síðan. Við spilum tónlist og óskalög fyrir alla aldurshópa.

Plötusnúðaborð og hljóðkerfi Diskóteksins Dúndurs

Tónlistin

Við mætum á staðinn með nýjustu og vinsælustu danstónlistina: Club, House, R&B, Hip Hop, Rap, Techno, Latin og hina sívinsælu diskótónlist, tónlist frá 50´s, 60´s, 70´s, 80´s og 90´s (fyrir reunion), rokk, rúmbu, sömbu, línudansa, gömlu dansana, barnadansa, hópdansa ýmiss konar og danstónlist frá hinum ýmsu löndum. Verið því óhrædd að biðja um óskalög. Við bjóðum einnig upp á dinnertónlist.

Lagasafnið sem við höfum meðferðis hverju sinni telur nú 50.000 til 60.000 lög. Það er í tölvu og við uppfærum það reglulega.

Ferðir út á land

Við erum með sérstakan sendibíl, sem er líka húsbíll, til að flytja öll tækin okkar og getum því brugðist skjótt við ef skyndilega þarf á okkur að halda.

Við höfum einnig ferðast um landið með Diskótekið Dúndur og Dúndur Karaoke og nýtum þá gjarnan aðstöðuna í bílnum ef með þarf.

Við höfum spilað við flest tækifæri

Og einnig verið með karaoke á mörgum þeirra. Hér eru nokkur dæmi:

  • Áramótadansleikjum
  • Árshátíðum
  • Afmælum
  • Bankastofnunum
  • Bjórkvöldum
  • Brúðkaupum
  • Danssýningum
  • Eurovision-partíum
  • Endurfundum (reunion)
  • Jólaböllum
  • Karaokekvöldum
  • Maraþonum
  • Móttökum ýmiss konar
  • Óvissuferðum
  • Tískusýningum
  • Tónlistaruppákomum
  • Útisamkomum
  • Verðlaunaafhendingum
  • Vinnustöðum
  • Vörukynningum
  • Þemakvöldum (50´s til 90´s)
  • Þorrablótum
  • Ættarmótum

Og svona mætti lengi telja.

Eigið hljóðkerfi

Frá stofnun árið 1991 hefur Diskótekið Dúndur alltaf komið með eigið hljóðkerfi, og við höfum ekki enn þurft frá að hverfa vegna þess að það hafi ekki verið nógu öflugt! Sjá tækin okkar.

Fullt dansgólf í Fylkishöllinni
Stuð í Fylkishöllinni, yfir 400 manns.

Hafðu samband

Við gerum verðtilboð eftir tilefninu hverju sinni.