Dúndur Karaoke

Dúndur Karaoke hefur starfað frá 1994 og er nú elsta starfandi ferðakaraoke-ið á landinu.

Yfir 11.000 karaoke-lög eru á listanum á netinu.

Lögin

Öll karaoke-lögin okkar eru komin inn á tölvu og því engin bið lengur. Nýjustu erlendu topplögin af íslensku, bresku og bandarísku vinsældalistunum berast reglubundið til Dúndurs.

Karaoke-lagasafn Dúndurs telur nú 16.000 til 17.000 lög ef heimstónlistin er talin með, en hún er ekki á listanum á netinu.

Þið getið valið ykkur lög í lagalistanum og einnig sent okkur óskalista. Listinn er þó ekki tæmandi og ný lög eru alltaf að berast, svo sendið okkur endilega fyrirspurn. Við gætum átt lagið eða útvegað það ef fyrirvarinn er nógur.

Kvöldið

Við spilum stuðlög áður en karaoke-ið hefst, á milli söngatriða og á meðan þið eruð að velja lögin.

Við skaffum diskóljós með karaoke-inu ef um það er beðið.

Við sjáum líka um diskótekið á eftir karaoke-inu ef þess er óskað. Það er líka ódýrara en að fá annað diskótek.

Við hlökkum til að sjá ykkur í geggjuðu karaoke- og diskóstuði!

Hafðu samband

Við gerum verðtilboð eftir tilefninu hverju sinni.