Hljóðkerfisleiga

Við leigjum út hljóðkerfi fyrir 50 til 600 manns. Við keyrum tækin til ykkar, setjum upp, tökum niður og skilum þeim aftur á sinn stað, allt innifalið í leigunni.

Það fer eftir stærð verkefnisins hverju sinni hversu öflug tæki við notum. Ef kalla þarf til sérstakan tæknimann greiðist það sér.

Við höfum leigt út hljóðkerfi fyrir útihátíðir í Húsafelli, Þjórsárdal, Laugarvatni og víðar, og í íþróttahús, t.d. Fylkishöllina, Valshöllina, Fífuna í Kópavogi og Haukahúsið í Hafnarfirði.

Þarftu aukabúnað? Við höfum einnig ýmiss konar tengibúnað fyrir tónlistarmenn, skemmtikrafta o.fl.

Tilefnin geta verið margvísleg

  • Árshátíðir
  • Afmæli
  • Dansleikir
  • Bjórkvöld
  • Brúðkaup
  • Danssýningar
  • Endurfundir (reunion)
  • Hljómsveitir
  • Jólaböll
  • Karaokekvöld
  • Móttökur ýmiss konar
  • Maraþon
  • Opnanir hjá bankastofnunum
  • Óvissuferðir
  • Ráðstefnur
  • Tískusýningar
  • Tónlistaruppákomur í verslunum
  • Trúbadorar
  • Útisamkomur
  • Vörukynningar
  • Ættarmót

Tækin okkar

Þetta er ekki tæmandi listi.

JBL hljóðkerfi 1 (VRX)

Hentar vel fyrir stærri atburði, svo sem í íþróttahúsum, á útisamkomum og annars staðar þar sem krafist er mikils hljóðstyrks.

  • 4 × JBL VRX932LAP toppar: 1750 W peak, 875 W continuous, 136 dB SPL við 1 m
  • 2 × JBL SRX728S tvöfaldir 18" bassar: 1600 W RMS, 27–220 Hz, 136 dB SPL peak
  • Magnarar fyrir bassana: Crown I-Tech HD og Crown XTi 6002 (allt að 6000 W brúað í 4 Ω)
JBL VRX932LAP toppur
JBL SRX728S bassi
Crown magnari

JBL hljóðkerfi 2

Mjög öflugt kerfi. JBL EON G2 eru einnig mjög góðir sem mónitorar fyrir hljómsveitir, karaokekeppnir o.fl.

  • 4 × JBL EON G2 virkir hátalarar, 400 W
  • 2 × Mackie SWA1801 bassar, 800 W
  • Mónitorar fyrir lítil karaoke-partí: 2 × JBL EON 10
JBL EON G2 hátalarar
JBL EON 10

Mackie kerfi 1

Toppar og bassar, samtals 4200 W. Hentar vel fyrir 400 til 500 manns.

  • 2 × Mackie SA1232 þriggja leiða kerfi, 1300 W RMS
Mackie SA1232 toppur
Mackie bassi

Mackie kerfi 2

Kerfið er 2500 W. Mackie SRM450 v2 eru einnig mjög góðir sem mónitorar fyrir hljómsveitir, karaokekeppnir o.fl.

  • 2 × Mackie SRM450 v2 toppar
  • 2 × Mackie SWA1801 bassar, 800 W
Mackie SRM450 v2
Mackie SRM450 v2 frá hlið
Mackie SWA1801 bassi

Mixerarnir okkar

Við höfum einnig minni mixera til leigu, t.d. fyrir trúbadora og minni atburði, og leigjum að sjálfsögðu út hljóðnema, snúrur og annan búnað sem til þarf.

  • Midas Venice 160: 16 rásir og endalausir tengimöguleikar (Porsche-inn í mixerum)
  • Mackie CFX12: 12 rása hljómsveitarmixer með effektum og tónjafnara
  • Behringer Eurorack UB1622FX-Pro
  • Yamaha 166CX USB: hægt að hljóðrita beint inn á tölvu
Midas Venice 160 mixer
Mackie CFX12 mixer
Behringer Eurorack mixer
Yamaha mixer

Hafðu samband

Við gerum verðtilboð eftir tilefninu hverju sinni.